- Hjálmaskylda er í reiðsal
- Farið á bak og af baki inn í miðjum velli
- Fetgangur skal riðinn á innri sporaslóð þegar aðrir knapar ríða á hraðari gangtegund á ytri sporaslóð
- Hægri umferð gildir þegar knapar mætast úr gagnstæðri átt
- Ekki má ríða hlið við hlið eða hafa tvo hesta til reiðar
- Knapi sem ríður bauga, á hringnum, eða aðrar reiðleiðir inni á velli veitir þeim forgang sem ríða allan völlinn á sporaslóð
- Ekki má stöðva hestinn á ystu sporaslóð. Ef stöðva þarf hest er best að gera slíkt inni á miðjum velli
- Hringtaumsvinna skal víkja fyrir þjálfun hesta á baki, nema samkomulag um annað gildi
- Fylgja ber hefðbundnum reiðleiðum á vellinum og forðast skal að ríða þvert fyrir aðra knapa
- Ekki má hafa lausa hesta á vellinum meðan á reiðþjálfun stendur né binda hest þar
- Lausaganga hunda er bönnuð inn í reiðhöllinni
- Knapar skulu sýna kurteisi og tillitssemi og forðast óróa eða hávaða
- Öll þjálfun og notkun í höllinni er á eigin ábyrgð
- Knapar skulu ganga vel um reiðsalinn og hirða skít upp eftir sinn hest
- Börnin yngri en 13 ára þurfa að vera í fylgd með forráðamanni
- Öll notkun á áfengi og annara vímuefna eru bönnuð svo og reykingar
