Efnilegasti knapi ársins
Aldís Emilía Magnúsdóttir 12 ára
Götuleikar Dreyra, T8 2.sæti Elja, tvígangur 2.sæti Tígull, Gæðingatölt 1.sæti Elja
KB Mótaröðinni, þar sem liðið vann allar greinar og Aldís var stigahæsti knapi barnaflokks, T8 3.sæti Elja, V5 1.sæti, Gæðingakeppni 2.sæti Kóróna
Opið Páskatöltmót Dreyra, reið Kórónu og Elju í úrslit, 2.sæti Kóróna
Íþróttamót Borgfirðings, V5 1.sæti Kóróna og T7 2.sæti
Opið gæðingamót og úrtaka Dreyra. Ríður tveimur hrossum í efstu sæti forkeppni, Tígull 8,48 og Elja 8,58 sem var jafnframt hæðsta einkunn hryssu í forkeppni á mótinu og hlaut bikarinn Hryssa mótsins. Aldís og Tígull enda síðan efst í úrslitum.
Fjórðungsmót Vesturlands, 2.sæti forkeppni, A úrslit 6.sæti
Íslandsmót barna og unglinga
Tók þátt í V2 og T3 með góðum árangri á Tígul og Elju. Reið hún á Elju B úrslit í bæði Gæðingakeppni, 12 sæti og Gæðingatölt 15 sæti
Aldís tók þátt í hinum fjölmörgu mótum fyrir hönd Dreyra á liðnu ári í barnaflokk með frábærum árangri jafnt í íþrótta- og gæðingakeppni. Má þar nefna Götuleika Dreyra og KB Mótaröðina þar sem Aldís var stigahæsti knapi barnaflokks og lið þeirra vann heildar mótaröðina. Opið Páskatöltmót Dreyra þar sem Aldís var með tvö efstu hrossin að lokinni forkeppni. Íþróttamót Borgfirðings þar sem Aldís vann fjórganginn og endar önnur í tölti.
Opið gæðingamót og úrtaka Dreyra þar er Aldís með tvö efstu hross að lokinni forkeppni, Tígull 8,48 og Elju 8,58 sem var valin Hryssa mótsins. Aldís og Tígull enda síðan efst í úrslitum.
Aldís var síðan einn af fjölmörgum flottum fulltrúum Dreyra á Fjórðungsmóti Vesturlands sem haldið var í Borgarnesi. Aldís var önnur að lokinni forkeppni og endaði í A úrslitum í 6.sæti. Einnig tók Aldís þátt á Íslandsmóti barna og unglinga sem haldið var í Hafnarfirði. Aldís mætti þar með tvö hross í tölt og fjórgang íþróttakeppni og náði góðum árangri. Einnig keppti hún í Gæðingatölti og Gæðingakeppni þar sem hún komst í B úrslit í báðum greinum.
Árangur Aldísar er eftirtektarverður þar sem hún keppti á 3 hrossum, Elju, Kórónu og Tígli, öll frá Birkihlíð, vann Aldís til verðlauna á þeim öllum. Sýnir það metnað og dugnað Aldísar að geta þjálfað, sýnt og keppt á fleiri en einum hesti. Framtíðin er björt hjá Dreyra.
Knapi ársins
Stjórn Hestamannafélagsins Dreyra tilnefnir Jakob Svavar Sigurðsson sem Hestaíþróttamann Dreyra 2025
Reiðmennska Jakobs er ávalt til fyrirmyndar og er hann fyrir mikil fyrirmynd í hestaheiminum.
Á Íslandsmóti 2025 var árangur hans eftirfarandi:
- Íslandsmeistari í tölti á hestinum Skarpi frá Kýrholti.
- 2. – .3 sæti í slaktaumatölit á Hrefnu frá Fákshólum
- 2. sæti í fjórgangi á Skarpi frá kýrholti.
Hann var valin Gæðingaknapi ársins 2025 á Uppskeruhátíð Landsambands hestamannafélaga sem haldin var í Gamla bíó s.l nóvember. Í tilkynningu frá
Landssambandinu kemur fram:
„Jakob sigraði B-flokk á Fjórðungsmóti Vesturlands á eftirminnilegan hátt á Kór frá Skálakoti með einkunina 9,24. Reiðmennska Jakobs geislar ávallt af fagmennsku og krafti, Jakob er gæðingaknapi ársins 2025.“
Auk þess gekk honum vel á keppnisbrautinni á fjölmörgum öðrum mótum. Jakob Svavar og Skarpur frá Kýrholti eru efstir Íslendinga í fjórgangi V1. á Alþjóðlegum íþróttamótum ( WR) á þessu ári og 3 sæti á listanum.
Hestamannafélagið Dreyri óskar Jakobi Svavari innilega til hamingju með frábæran árangur á árinu sem er að líða
Knapi ársins í kvennaflokki
Svandís Lilja Stefánsdóttir
Þá að hún hafi ekki keppt á mörgum mótum á árina að þá gekk henni vel á þeim mótum sem hún tók þátt í.
Hún var efst í B flokki fæðinga á gæðingamóti Dreyra á Jaka frá Skipanesi.
Á fjórðungsmóti vesturlands var hún í 6 sæti í tölti T3 á Jaka frá Skipanesi
Einnig var hún í 15 sæti á A flokk gæðinga á Yl frá Skipaensi
Hestamannafélagið Dreyri óskar Svandísi Lilju i innilega til hamingju með árangur ársins!
Sjálfboðaliðar ársins 2025
Stjórn Hestamannafélagsins Dreyra tilnefnir þær
- Sólveigu Ástu Gautadóttir
- Eyrúnu Sif Ólafsdóttir
- Auði Freydísi Þórsdóttir.
Þær stöllur hafa komið mjög öflugar inn í félagsmál félagsins undanfarin misseri.
Sérstaklega í barna- og undlingastarfi. Þær eru alltaf tilbúnar að rétta fram hjálparhönd þegar á þarf að halda.
Stjórn hestamannafélagsins Dreyra þakkar þeim kærlega fyrir óeigingjarnt starf í þágu félagsins.
