Almennar reglur

  • Hjálmaskylda er í reiðsal
  • Farið á bak og af baki inn í miðjum velli
  • Fetgangur skal riðinn á innri sporaslóð þegar aðrir knapar ríða á hraðari gangtegund á ytri sporaslóð
  • Hægri umferð gildir þegar knapar mætast úr gagnstæðri átt
  • Ekki má ríða hlið við hlið eða hafa tvo hesta til reiðar
  • Knapi sem ríður bauga, á hringnum, eða aðrar reiðleiðir inni á velli veitir þeim forgang sem ríða allan völlinn á sporaslóð
  • Ekki má stöðva hestinn á ystu sporaslóð. Ef stöðva þarf hest er best að gera slíkt inni á miðjum velli
  • Hringtaumsvinna skal víkja fyrir þjálfun hesta á baki, nema samkomulag um annað gildi
  • Fylgja ber hefðbundnum reiðleiðum á vellinum og forðast skal að ríða þvert fyrir aðra knapa
  • Ekki má hafa lausa hesta á vellinum meðan á reiðþjálfun stendur né binda hest þar
  • Lausaganga hunda er bönnuð inn í reiðhöllinni
  • Knapar skulu sýna kurteisi og tillitssemi og forðast óróa eða hávaða
  • Öll þjálfun og notkun í höllinni er á eigin ábyrgð
  • Knapar skulu ganga vel um reiðsalinn og hirða skít upp eftir sinn hest
  • Börnin yngri en 13 ára þurfa að vera í fylgd með forráðamanni
  • Öll notkun á áfengi og annara vímuefna eru bönnuð svo og reykingar