- Handhafar árs-og mánaðarkorta hafa ótakmarkaðan aðgang að höllinni þegar hún er ekki í annarri skipulagðri notkun t.d. námskeið og sýningar. Miðað er við að höllin geti verið í notkun frá kl. 08:00 til 24:00.
- Fullorðnir handhafar árs-og mánaðarkorta mega hafa börn sín 13 ára og yngri með sér í höllinni án þess að greiða fyrir.
- Börnin mega ekki vera ein í höllinni og eru þar ávallt á ábyrgð foreldranna
- Þeir sem keypt hafa einkatíma í höllinni hafa hana einir til umráða
- Notendur hallarinnar skulu ganga snyrtilega um m.a. þrífa upp hestaskít eftir sína hesta og annað rusl
- Óheimilt er að hafa hrossin laus í reiðhöllinni. Verði notendur uppvísir að slæmri umgengni er stjórn hallarinnar heimilt að banna þeim afnot af höllinni. Séu þeir búnir að greiða fyrir afnot af höllinni fram í tímann fá þeir það EKKI endurgreitt.
- Bæði notendur hallarinnar og gestir eru ávallt í höllinni á eigin ábyrgð
- Notendur hallarinnar skulu sýna hver öðrum tillitssemi og vera öðrum til fyrirmyndar í hvívetna
- Hjálmskylda er í höllinni
- Reykingar og notkun annarra vímuefna eru stranglega bannaðar í reiðhöllinn
